Nýtt á Íslandi, sláðu í gegn með minigolfi á þinum viðburð. Einstakur mini golf veislugarður til leigu. Við komum, sjáum um alla uppsetningu og tökum niður í lokin.

Mini golf leikurinn getur verið frjáls, liðakeppni eða einstaklingskeppni. Fyrir stærri veislur mælum við með liðakeppni og fyrir smærri hópa (færri en 10) einstaklingskeppni. Gera má ráð fyrir að 1 hringur (6 holur) taki 6-10 mínútur og 2 hringir um 20 mínútur. Skorkort með nánari leikreglum fylgir með á upplýsingaborði. 6 brautir þurfa um 100fm svæði en líka hægt að dreifa brautum á fleiri rými þar sem þær eru númeraðar.
Grænka ehf hefur nýverið útvíkkað starfsemi sína og býður nú upp á færanlegan mini golf garð til útleigu. Áður hafði starfsemi félagsins eingöngu verið í sölu á tilbúnum blómakerum og garðaráðgjöf. Grænka ehf er í eigu Kristjáns Andra Jóhannssonar. Kristján er með bs. gráðu í landslagsarkitektúr og hefur víðtæka reynslu af því að koma fram í gegnum, sölu- og markaðsstörf, kennslu, spuna og fundarstjórn.


